25.03.2007 21:55:47 / Orri
Já eins og flestir vita þá er bara kominn sunnudagurinn 25. mars
og helgin rétt að klárast...
en já helgin er búin að vera bara ágæt á föstd. þá fór maður á
fyllirí hehe já hún María Ösp var 25 ára gömul og allt að gerast.
auðvitað var haldið uppá það sem var bara mjög fínt það var haldið
uppá það á sport café uppí grafarholti og síðan var bara förinni
haldið niður í bæ og þaðan fór maður síðan bara heim að sofa hehe
ég var eiginlega mikið lengur en ég ætlaði mér ég kom heim kl 7 og
ætlaði að mæta í vinnuna kl 8 en það gekk ekki alveg þar sem maður
var fullur og mamma náði ekki að vekja mann. öss og síðan var
laugardagurinn bara mátulega rólegur maður var reyndar mjög
þreyttur eftir föstd. kveldið enda var það svosem ekkert skrítið
þar sem maður var búinn að vaka í sólahring þegar maður fór loksins
að sofa en síðan kom hún Bessa í heimsókn til mín og við skelltum
okkur bara á rúntinn og síðan fórum við og náðum í Lísu á
Rubaytuseday eða hvernig sem það er nú skrifað og héldum bara áfram
að rúnta eitthvað framm eftir kveldinu og síðan var maður kominn
heim eitthvað rétt yfir kl 12 og fór að sofa. Sunnudagurinn semsagt
dagurinn í dag er bara búinn að vera rólegur og strákurinn vaknaði
bara fyrir hádegi svona temmilega hress og var bara eitthvað smá í
tölvunni og síðan skrapp maður í hfj en eins og vanalega ekkert að
gerast þar og enginn sem maður þekkti var á ferðinni. alveg
merkilegt hvað stöðin er allt í einu orðin svakalega dauð aldrei
neinn þarna lengur öss það er ekki nógu sniðugt myndi ég segj en já
svona er þetta bara... en já svo fór maður bara heim til mæju og
þar var smá afmælis kaffi og kökur hehe og já maður var þar í góðan
tíma í chillinu bara og borðandi kökur, síðan fór maður bara heim
þannig að það má bara segja að ég sé nýkominn heim sem er fínt þá
getur maður tekið því bara rólega sem eftir er af
kveldinu.
Já ég tel þetta vera bara komið gott í bili þangað til næst
hvenar sem það nú verður 
Bless
»
21.03.2007 22:27:37 / Orri
Já heyrðu nú mig mikið djöfull hefur maður verið latur við það
að blogga eitthvað hérna enda ekkert merkilegt til að segja frá
nema það að núna síðustu helgi þá fór maður og keypti sér bara pick
up hehe já Dodge Ram 1500 Hemi. vá þvílíkt apparat segi ég nú bara
og alveg ótrúlega þægilegur bíll kem með myndir af honum fljótlega
þegar það verður komið ágætis veður til að þrífa hann og taka
nokkrar myndir.... en já yfir í annað þá er maður bara að fara í 25
ára afmæli á föstudaginn og það verður grímuball og læt,, vonandi
svakastuð á fólkinu jájá ég hef nú svosem lítið að gerast nema
maður var nátttla veikir í eitthverja 10 daga held ég um daginn og
það var alveg drepleiðinlegt síðan fór maður bara að vinna eftir
veikindin og skoða bíla eftir vinnu og prufukeyra og loks á endanum
þá fann maður Raminn eftir langan tíma en ég held að það hafi
borgað sig að taka sér góðan tíma í það að skoða bara hvað er í
boði og hvað manni líst best á. heyrðu já ætli maður hendi ekki inn
öðru bloggi eftir helgina og segji hvað hefur gerst skemmtilegt

Bless í bili
»
28.02.2007 22:14:11 / Orri
Já eins og flestir vita þá er nú febrúar mánuður að ljúka og þá
tekur væntanlega mars mánuður við ótrúlegt hvað þetta getur verið
fljótt að líða en já ég ætlaði nú að smella hérna eitthverju inn og
segja frá síðustu viku en versta er að ég man ekki hvað gerðist í
síðustu viku hehe nema bara vinna og hanga heima... en já helgin
byrjaði rólega gerði ekkert á föstudeginum en aftur á móit á
laugardeginum þá fór maður á heljar innar djamm og vitleysu og það
var bara nokkuð gaman held ég nema núna í gær semsagt þriðjudeginum
þá varð ég allt í einu fárveikur arg þessi helvítis veikindi.. það
er víst voðalega lítið sem maður getur gert í þeim málum nema sætta
sig við það að vera veikur og hanga heima æji ég nenni eiginlega
ekki að hafa þetta mikið lengra núna þar sem það er ekkert að
gerast hjá mér.
bless
»
16.02.2007 17:30:34 / Orri
Já þá er það enn einn föstudagurinn runnin upp vikan hjá mér
hefur verið nokkuð róleg bara hangið heima og horft á myndir hehe
já verður maður ekki að gera það annað slagið ?? ég held það
skiluru... en já reyndar skruppum við vignir aðeins út eitt kvöldið
í vikunni og kýktum aðeins á rúntinn sem var alveg fínt fórum og
skoðuðum bílasölur og svona sem er fínt og það þýðir ekkert annað,
maður verður nú að fara fá sér bíl aftur þetta er orðið svoldið
þreytt að vera allataf bara heima og gera ekki neitt en já nóg um
það í bili síðustu helgi hmm já þá ætlaði maður nú að kýkja
eitthvað á djammið en það varð ekkert úr því þar sem maður komast
ekkert héðan burtu af nesinu og enginn sem nennti að keyra man..
ekki var ég tilbúinn til að fara borga taxa þanning að ég var bara
heima og horfði á myndir jú heyrðu á föstudeginu þá kýkti ég
eitthvað út minnir mig fór á rúntinn og hitti hana bessu hún kom í
bæinn yfir helgina síðan var rúntað eitthvað aðeins og já bara
farið heim að specca mynd síðan gerðu ég ekki neitt á
laugardeginum, svona er þetta bara aldri neitt spennandi að
gerast... en já þessa helgi er pæling að kýkja eitthvað út á lífið
með ingva hvort það verður í kvöld eða á morgun á eftir að koma í
ljós en gæti farið svo að það verður farið bæði kvöldin eitthvað út
maður veit aldrei.
En hvernig væri það nú að fólk færi að commenta fyrst það eru
svona margar heimsóknir á síðuna á dag? ég nenni nú varla að vera
henda hérna inn eitthverju bloggi ef fólk nennir ekki einu sinni að
commenta mér finnst það nú eiginlega algert lágmark að segja sína
skoðun á málinu!!
Já ætli ég láti þetta þá ekki duga í bili og sjái síðan til
hvort að ég hendi inn fleirrum bloggum en ef ég á að halda áfram
með þessa síðu þá væri gaman að sjá fleirri comment eins og ég
sagði hérna áðan..
See ya...
Orri
»
10.02.2007 03:00:18 / Orri
Nei heyrðu tæknilega séð þá er kominn 10 feb. hmm en meina
ég er ekki farinn að sofa þannig að hjá mér ennþá 9 feb hehe en já
nóg um það síðasta vika hjá mér hefur nú bara verið hvað á maður að
segja vinna og tjill eða já bara verið heima og legið í leti þegar
maður kemur heim úr vinnunni smá þreyttur eftir daginn en það
jafnar sig með tímanum verst hvað helgarnar eru fljótar að líða og
síðan er bara kominn mánudagur það er náttla ekki nógu gott sko,,,
því fær maður víst ekki breytt en vikan er nú ekkert lengi að líða
heldur þannig að já ég veit ekki meira... en já maður hefur bara
verið að vinna á fullu og alveg nóg að gera hjá manni og já síðan
er maður kominn í það job í vinnuni að maður er bara farinn að
sprauta á fullu semsagt bara inní sprautu klefa á fullu hehe
það
er þokkalegt það góða við það er að manni verði allavega ekki kalt
hehe nóg um það dagurinn í dag er búinn að vera ágætur mætti bara
nokkuð ferskur í vinnuna og þurfti reyndar að vinna aðeins lengur
og það þýðir náttla bara meiri peningur fyrir mig hehe og já síðan
fór maður heim og sofnaði reyndar í alveg 2 til 3 tíma en það er
ágætt og síðan hitti maður hana Bessu ásamt fljólu og viktori og
krúsað aðeins um bæinn síðan fór maður bara heim og já maður er í
því núna að specca eina bíómynd og síðan er það málið að fara sofa
þannig að ég býð bara góða nótt
heyrumst seinna
Orri
»
27.01.2007 03:31:12 / Orri
Jæja þá er janúar mánuður bara alveg að fara ljúka öss mér líst
samt bara vel á það já því þá fær maður útborgað og á loksins smá
pening til að geta gert eitthvað skemmtilegt hehe t.d. farið á
djammið eða bara já eitthvað annað sniðugt... en síðustu dagar hjá
mér hmm hvar ætti maður að byrja hehe nei ég segi nú bara svona
þannig hefur þetta verið hjá mér að ég hef vaknað í vinnuna á
morgnana og síðan farið beint heim eftir vinnu og síðan já verið
bara heima og speccað myndir og verið bara virkilega rólegur sem er
bara helvíti gott annað slagið.. maður má nú alveg taka nokkra daga
í algjöra leti segi ég nú bara maður á það nú alveg skilið en já
föstudagskvöldið sem er að líða það hefur verið ósköp rólegt bara
ég keyrði dagnýju, ingudóru og lillý út á granda eða réttara sagt
hellirinn þar voru eitthverjir tónleikar í gangi black metal eða
eitthvað ég veit ekki hef engan áhuga heldur á svoleiðis tónlist og
já síðan fór ég bara og kýkti á ingþór og fór með honum aðeins út
og síðan fór ég og náði í stelpurnar þegar tónleikarnir voru
búnir... síðan fór ég bara heim eða fór reyndar í heimsókn í næstu
götu og fór að glápa á tv hehe og síðan kom ég heim. en það helsta
sem hefur verið að gerast hjá mér er það að ég er að reyna selja
toyotuna mína svo að ég geti loksins farið að vesenast í því að
gera við helvítis dodge-inn minn ég er búinn að vera alltof latur
við það að gera eitthvað í honum eða með réttu ekki nennt að hugsa
um hann greyið verst hvað mér finnst varahluturinn dýr í bílinn við
erum að tala um eitthvern 73 þús kall bara varahluturinn og síðan á
ég eftir að fara með bílinn á verkstæði til að láta laga hann arg
þetta er nú meira helvítis vesenið að eiga bíl og sérstaklega þegar
hann bilar en jæja það þýðir víst ekkert að vera væla neitt yfir
því. Já ég ætla bara að selja toyotuna til að geta keypt
varahlutinn í dodda og gera við hann og koma honum í gegnum skoðun
og svona og svo að lokum þegar það er allt saman komið í gott lag
þá ætla ég að reyna kaupa mér annan bíl en hvernig sá bíll verður
það er ekki búið að finna út úr því ennþá hehe en það verður
eitthvað nýrra en 88' og 93' árg vonandi eitthver amerískur pickup
eða eitthvað álika skemmtilegt. heyrðu já eitt sem ég gleymdi að
segja frá er það að hann siggi vinur minn er loksins búinn að fá
íbúðina síðan til hamingju með það gamli. jæja ætli égl láti þetta
ekki bara gott heita í bili heyrumst betur seinna!
You dead man?
Ja man
Kv
Orri
»
19.01.2007 17:33:27 / Orri
Hæhæ allt að gerast...
Nei ég segi nú bara svona það er eiginlega ekki neitt að gerast hjá
mér bara vinna og svo heim að chilla æji þetta sama gamla bara en
já kallinn er að fara með vinnunni í maí til þýskalands og það vill
svo skemmtilega til að það verður eitthvað vínfestival einmitt í
þeim bæ í þýskalandi sem við verðum í hehe það er bara kúl og síðan
á að fara breyta vinnu tímanum eitthvað vinna bara mánudaga til
fimmtudaga frá kl 8 - 17 og svo til hálf 3 á föstudögum... djöfull
verður það gott öss jájá þannig að ég er svosem ágætur bara
allavega eins og er þessa stundina ný kominn heim. Ég kýkti reyndar
á hann Óla vin minn greyið strákurinn var að vinna uppá stöð hehe
og já síðan fór maður bara heim en hvað verður gert í kvöld og um
helgina úff ég veit það ekki alveg ennþá en allavega ekkert fyllirí
að því að ég á engan pening

helvítis rugl alltaf tja svo er
Alti kallinn að fara út í nótt með vinnunni sinni þeir eru að
fara kýkja aðeins til london og ef ég þekki hann Atla rétt þá
verður eitthvað brjálað fyllirí sérstaklega þeir hann og Helgi eru
á svæðinu öss en já ætli ég láti þetta ekki bara duga í bili ég
held það barasta heyrumst seinna.
Kv.
Orri
»
13.01.2007 17:48:30 / Orri
Já það er bara kominn laugardagurinn 13 jan og og já lítið sem
ekkert að gerast hjá mér ég fór reyndar með vigni vestur í gær hann
skrapp til að ná í írisi... ferðin var svosem ekkert sérstök var
frekar leiðinlegt veður á köflum þannig að maður sá ekki næstu
stiku á veginum en það jafnaði sig með tímanum og síðan sat maður
bara aftur í á leiðinni heim og sagði varla eit orð á leiðinni heim
og já maður var kominn heim rétt fyrir kl 2 og þá var farið í
tölvuna aðeins og síðan bara sofa reyndar þá náði ég í sódóma
reykjavík sem er klikkuð mynd.. síðan vaknaði maður aftur um kl 3
og fór eithvað í tölvuna og horfði síðan á sódóma reykjavík og já
annað hef ég ekki gert í allan dag nema liggja uppí rúmi og gera
ekki neitt!! og ég á svosem ekki von á því að maður geri eitthvað í
kvöld nema hanga bara heima en það á reyndar eftir að koma í ljós
hvað verður gert jæja ég ætla að láta þetta duga í bili og vanandi
að fólk fari að commenta eitthvað hjá mér annars er ekkert gaman að
því að skrifa hérna eitthverja vitleysur..
Bless í bili
Orri
»
10.01.2007 20:56:48 / Orri
Heyrðu já það er nú bara kominn 10. jan öss ekki gott eða hvað? já
voðalega lítið að gerast hjá mér var bara að vinna á mánudaginn og
svo fór maður bara heim eftir vinnu og eitthvað hangið bara í
tölvunni og látið sér leiðast eins í gær líka og vitiði hvað það er
bara að gerast í kvöld líka... alveg merkilegur andskoti!! núna
situr maður bara við tölvuna og hlustar á tónlist í ágætis tjilli.
Er síðan ekki bara málið að reyna fara snemma að sofa í kvöld svo
að maður mæti ekki of seint í vinnuna aftur í fyrramálið? ég held
það barasta!! já kallinn er bara svona þreyttur og tómur og hefur
ekkert að gera eða nennir eiginlega ekki neinu meina hvað getur
maður gert aleinn annað en að sitja fyrir framan tölvuna og hlusta
á tónlist? ég er allavega það hugmyndasnauður að mér dettur ekkert
í hug hvað ég gæti farið að gera.. mér langar helst bara að fara og
leggjast uppí rúm og specca eitthverja mynd en verst að ég er búinn
að horfa á allar dvd myndirnar hérna á heimilinu og þær eru nú ekki
fáar skal ég segja þér! jájá síðan er maður frekar fátækur rétt hef
pening í fyrir bensíni til að komast í vinnuna ég veit meira segja
ekki hvort að ég eigi pening til að komast í vinnuna út mánuðinn

en það kemur þá bara í ljós og þá getur maður nýtt tækifærið í
leiðinni og hætt að reykja þar sem ég á ekki pening fyrir sígó
heldur

en já ég var að muna eftir því núna siggi vinur minn hann
er bara að fá íbúðina sína í næstu viku.. það verður mikil breyting
fyrir strákinn. já ætli þetta sé ekki bara komið ágætt í bili? jú
ég held það bara
Kveð að sinni
Orri Már
»
09.01.2007 23:53:36 / Orri
Hey já afhverju ekki að halda áfram með síðuna? já það hefur bara
ekki neitt skemmtilegt gerst hjá mér síðustu daga nema á
laugardaginn þá var ég fullur það var þokkalegt og síðan hefur
maður verið bara í eitthverju tómu tjóni hérna svaf ekkert frá
sunnudeginum og þangað til í morgun sofnaði rétt áður en ég átti að
mæta í vinnuna hehe og mætti óvart of seint en það var allt í lagi
tóti sagði ekki neitt við því þannig að það var allt í góðu en núna
sitjum við vignir hérna heima hjá mér og höfum ekki baun að gera
mjög skemmtilegt hmm einmitt það já... en já nóg í bili...
»
09.01.2007 03:07:05 / Orri
Ætti maður að halda áfram með síðuna eða bara slútta þessu alveg?
ég veit eki hvað gera skal...
»
03.01.2007 17:07:59 / Orri
Já ég er hættur þessu nenni ekki að skrifa alltaf hérna annað
slagið lengur Bless
»